Project Description
Sigling í Vestmannaeyjum til að sjá mjaldra, lunda og kíkja á mjaldrasafnið
Komdu í siglingu í Vestmannaeyjum til að sjá hvar mjaldrarnir munu búa. Mjaldrarnir eru enn í mjaldrasafninu í eyjum og þú getur séð þá inn á safninu. Við Ribsafari – Boat Tours in Vestmannaeyjar erum með reglulegar ferðir í Klettsvík í samvinnu við Sealife Trust Beluga Whale Sanctuary.
Í ferðinni mun leiðsögumaður frá mjaldrasafninu segja frá mjöldrunum og ævintýrum þeirra til þessa og hvernig þeir munu búa í Klettsvík í náinni framtíð. Við skoðum líka nálægar eyjar Elliðaey/Bjarnarey til að sjá lunda í náttúrunni.
Athugaðu að miðinn þinn gildir líka sem aðgöngumiði í Mjaldrasafnið. Þú getur heimsótt Mjaldrasafnið fyrir eða eftir bátsferðina. Með því að kaupa miða í þesa ferð ertu að styrkja safnið og fer ágóðinn í að fæða mjaldrana og passa upp á velferð þeirra sem og lundanna og annarra dýra í safninu. Með þinni hjálp getum við hugsað um mjaldrana og veitt þeim góða framtíð. Því miður munu mjaldrarnir aldrei geta verið frjálsir í náttúrunni þar sem þeir hafa alltaf verið á safni eða sem sýningardýr. Þeir vita ekki hvernig þeir geta bjargað sér um mat í náttúrunni. Með því að fara í þessa ferð ertu að styrkja það að hægt sé að annast mjaldrana. Lundarnir á Mjaldrasafninu hefur verið bjargað af Eyjamönnum þegar þeir voru pysjur og hefur ekki verið unnt að sleppa þeim aftur í náttúruna. Það er verið að hjúkra þeim og passa upp á þá í lundaeftirlitinu. Þú getur séð lunda og önnur dýr á Mjaldrasafninu.
Klettsvík, lundar og Mjaldrasafnið
Fullorðnir: 18.900 kr.
Börn (3-12 ára): 11.900 kr.
Börn undir 3. ára: 0 kr.
Ellilífeyrisþegar: 11.900 kr.